Monday, December 29, 2008

Gleðilega hátíð

Við óskum ykkur gleðilega hátið og farsælt komandi ár ;D
Bestu jólakveðjur,
Lilja & Snævar

Monday, December 1, 2008

Facebook krísu afstrírt

Í gær tók ég mig til og fór inn á Facebook í fyrsta sinn í 9 mán. Vá hvað ég er búin að vera ódugleg í þessu Facebook dæmi. Jæja, hvað með það þá setti ég inn nokkrar myndir (sem tóku forever að hlaðast inn) og svaraði eitthvað af þessum 150 skeytum sem ég var búin að fá. Á bara 57 eftir núna!! Það tekur sko sinn tíma að komast inn í þetta þegar maður var ekkert svo virkur í þessu fyrir. Ætla að reyna að gera mitt besta við að vera virkari á Facebook.

Bestu kveðjur,
Lilja

Wednesday, November 26, 2008

Fannar Logi Jóhannessson

Ég fékk þennan póst fyrir svolitlu síðan. Mig langar eindregið til að biðja ykkur lesendur góðir um að lesa það sem hér stendur fyrir neðan.

Fannari kynnist ég fyrst í Kópavogsskóla í 7. bekk. Bekkirnir tveir N og S voru mjög samrýmdir enda mjög lítill árgangur. Fannar svolítill stríðispúki og hafði einstakt lag á að gera mann pirraðan, en í sömu andrá gat hann sagt eitthvað fyndið sem fékk mann til að hlægja. Ég get ekki sagt að ég hafi þekkt hann vel í skólanum en hann var hluti af hópnum, litla samfélagi N og S bekkjanna. Ég vissi ekki hvernig ég ætti að nálgast ykkur fyrrum bekkjarfélagar, en maður hefur víst misst sambandið í gengum árin. Ef þið lesið þetta blogg, mætti ég biðja ykkur um að benda hinum krökkunum á þessa færslu eða segja þeim frá sjóði Fannars.

Með fyrirfram þökk,
Lilja Níelsdóttir
Kópavogsskóli, Útskriftarárgangur '03

¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨

Kæru vinir og vandamenn

Til minningar um Fannar Loga okkar, stofnuðum við í sumar sem leið sjóð í hans nafni, hjá Styrktarfélgai krabbameinssjúkra barna. Safnaðist í hann um 300.000 kr. Erum við afar þakklát þeim stuðningi.

Við leitum til ykkar því okkar langar að fara af stað með söfnun tengda afmæli Fannars þann 25. nóvember. Ef þessi söfnun gengur vel, mun sjóðurinn verða í Krabbameinsfélgainu til frambúðar, er það okkar einlæg ósk að svo geti orðið.

Til þess að stuðla að því langar okkur að vera með árlega söfnun tegnda afmæli Fannars.

Seinna meir er jafnvel hugsandi að fara af stað með stærri söfnun, þá jafnvel í samvinnu við félagið sem við höfum átt mjög gott samstarf með.

Félagið sér alfarið um útdeilingu úr sjóðnum og erum við afar sátt við það fyrirkomulag.

Sjóðurinn er hugsaður til að hjálpa börnum sem eiga sér þann draum stærstan að komast á fóboltaleik erlendis. Mun hann koma til með að veita börnum þá einstöku ósk að fá að upplifa hetjurnar sínar spila fótbolta og upplifa það með berum augum. Fannar fékk tækifæri til að upplifa hetjurnar sínar á Old Trafford með berum augum og þannig rættist draumur hans frá barnæsku. Fyrir Fannar og nánustu fjölskyldu hans var þessi ferð algerlega ómetanleg og ógleymanleg því ómetanlegar minningar standa eftir.

Allur stuðningur við sjóðinn er gífurlega vel þeginn, stór og smár og þakklæti okkar sem standa á bakvið hann er ótakmarkað. Það er ekki einugis verið að gefa pening, það er svo miklu meira sem er verið að gefa. Það er verið að gefa fjölskyldum krabbameinssjúkra barna von og gleði. Hjálpaðu okkar að láta draum annarra barna rætast. Því okkar trú er sú að það sé í anda Fannars Loga.
Reikningur: 0301-26-545
Kennitala: 630591-1129
Tilvísunarnúmer: FLJ

Áríðandi er að tilvísunarnúmer Fannars komi fram svo öruggt sé að peningurinn fari í réttann sjóð!!

Vinsamlegast áframsendið þennan póst til allra þeirra sem tengdust Fannari fjölskyldu og vinaböndum.

Með fyrirfram þökk,
Fyrir hönd,
Aðstandenda og vina
Þórey

Monday, November 3, 2008

Vilhjálmur Vilhjámlsson - TÓNLEIKAR

Í október fengum við Snævar gefna miða frá tengdó á tónleika Vilhjáms Vilhjálmssonar (11. okt). Þetta voru æðislegir tónleikar. Að sjá lögin hans spiluð á ný upp á sviði af þjóðkunnum söngvörum, hljóðfæraleikurum og lítinn hluta af Sinfóníuhljómsveit Íslands. Þetta var yndislegt!! Mér fannst besta lag kvöldsins vera Sexstrengja (mynnir að lagið heitir það?). Lagið tók hann Laddi og gerði það af algjörri snild. Þessir tónleikar voru án gefa hápunktur mánaðarins míns.

Mæli eindregið að fólk skelli plöntunni á fóninn í skammdeginu. Það léttir bara skapið að ímynda sér að maður sé á Jamica með börnin ber...

Góða nótt,
Lilja

Sunday, October 12, 2008

Kreppan breyðir teppi yfir Ísland

Kreppan er að skella á landann af fullum þunga í þessum töluðu orðum. Fólk hleypur í bankana til að bjarga því sem bjarga verður. Fyrirtæki gramsa í bókhaldinu og athuga hvort allir reikingarnir séu örugglega ekki farinir út úr húsi. Tvítékka allar peningaúttektir fyrirtækisins. Panik ástand hefur skapast!

Ég hef verið mikið að spá hvað við námsmenn getum gert í kreppu, án þess að stofna okkur í skuldasúpuna. Besta ráðið mitt núna er að fara yfir hvað þið eruð að eyða í. Takið fram allar kvittanir sem þið eigið og tékkið í heimabankan ef eitthvað vantar upp á. Setið þetta skipulega upp í Excel-skjal eða hripið þetta niður á blað. Ef um par er að ræða takið frá það sem þið eruð að kaupa í matin og fyrir heimilið sér og síðan hvað þið eruð að eyða. Mér persónulega finnst betra að vinna með Excel því þá er hægt að taka allt árið saman í einu skjali.

Þegar öllu hefur verið skellt upp í Excel koma upp skemmtileg atvik, því þá sér maður svart á hvítu hvert peningurinn er að fara. Ég fann sógun í mínu bókhaldi, ég komst að því að ég kaupi frekar mikið af nammi og gosi. Það hefur síðan skilað sér í aukakílóum sem mér þætti rosalega gaman að losna við!! Nammið og gosið hefur máttt eiga sig alla þessa síðustu viku nema á laugardögum en þá set ég mér 500 kr. frjárhæð sem má eyða í gotterí. Til gamans má geta hef ég misst 2,5 kg síðan þessi tilraun hófst og sparað nokkra aura.

Það er ekki alslæmt að fara yfirr heimilsbókhaldið ;D