Saturday, December 1, 2007

dúmm, dúmm, dúmm... trogdor!

úff... þá er maður búin að uppfæra bloggið aðeins. Ég verð að viðurkenna það hér og nú að ég stal hugmyndinni hennar Önnu, "Á döfinni". Enda er það snildar hugmynd sem hver og einn ætti að hafa upp á blogginu sínu. Ég skírði mitt þó að eins örðu vísi og um kalla það "Atburði"... ekki mjög frumlegt ég veit, en það virkar.

Þeir sem langar að sjá eitthvað mjög fyndið á youtube ættu að slá inn leitar orðið TROGDOR eða STRONG BAD. Þá finni þið mjög svo húmor miklar teiknimynda stuttmyndir. haha.... dúmm, dúmm, dúmm tragdor! Þið getið líka skrollað niður síðuna mína og sé link á stuttmyndar frá youtube.

Annars er ekkert rosalega mikið að frétta af mér. Í dag skrifaði ég þó undir samninginn hjá Kaupþingi. Þannig að ég er aftur orðin starfsmaður hjá því ágæta fyrirtæki ;D Nenni bara ekki að blogga meira að sinni. Ég dæli inn fréttum um leið og þær berast.... see ya.

Wednesday, November 28, 2007

Önnur dyr, fleikt upp

Þegar einar dyr lokast opnast alltaf önnur dyr. Það er þó alltaf spurningin hvort að þessi dyr sé svo réttar fyrir mann eða ekki. Stundum opnast bara dyr sem fylgja þér á svo vafasamabraut að það er enginn séns að þú farir inn um þær. En svo eru aðrar sem eru svona eins og "pitt stop", þú virðist aldrei sjá fram á að losna úr sama farniu sem þú skapaðir þér með því að ganga inn um dyrnar. Síðan eru þær dyr sem eru eins og stuttur áfangastaður sem þér/örðum er ætlað að dvelja í stuttan tíma. Svo koma þessar frábæru dyr sem eru betrum bót á þeirri dyr sem maður lokaði.

Jæja ætti ég þá ekki bara að drífa mig í því að segja ykkur stóru fréttirnar? Ég fann dyrnar, þessa seinustu sem ég var að lýsa. Yndislegu tegunudina. Ég hætti í tannlækninum fyrir nokkru síðan og var að fá starf hjá Kaupþingi. Þetta er bara svo geðveikt mikil heppni. Ég er bara í skýjunum yfir þessarri vinnu. Það er nefnilega ekkert smá gaman að vinna hjá Kaupþingi, enda gerði ég það í sumar sem leið. Snildar fyrirtæki, alla veganna er mikið félagaslíf hjá því fyrirtæki.

Þetta voru svo mínar stóru fréttir. Ég er mjög fegin að fá frí í 9 mánuði frá skóla, enda búin að fá smá þreytt á honum. Sérstaklega eftir seinustu tvær annirnar mínar í FG. Kommon 6 stærðfræði áfangar á 2 önnum og svo bara raungreina með. Úff... ég veit ekki alveg hvað ég var að hugsa þá. En þetta voru án efa erfiðustu annirnar mínar til þessa og mest skemmtilegustu í leiðinni. Hver skyldi hafað hugsað sér að stærðfræði gæti verið svona æðislega skemmtileg ;D

Ætla að drífa mig í ræktina
See ya

Wednesday, November 21, 2007

Þegar ein dyr lokast, opnast önnur

Upp á síðkastið hef ég trúað mjög á þessi fleigu orð, "Þegar ein dyr lokast, opnast önnur". Þetta er svo sannarlega satt. Það er alltaf hægt að krafsa sig út úr vandamálum, einhvern vegin. En það skrítna er, að ef okkur tekst það. Dveljum við svo lengi við "gamla vandarmálið" að við finnum/sjáum ekki dyrnar sem opnast á nýjan leik. Það eina sem er kannski pínu erfitt við þetta allt er velja réttu dyrnar.

ok... nóg af heimspekilegum pælingum. Ég kem með áhugaverðar fréttir í lok vikunnar eða byrjun næstu. Fylgist með ;D

Saturday, November 17, 2007

Listinn endalausi

Ég sá þennan lista á blogginu hjá Elínu og Önnu. Þannig að ég ákvað að fá að ræna honum... no hard feelings ,D Það var svo gaman að lesa hann hjá þeim þannig að ég ákvað að fylla hann út hérna á blogginu mínu. Here I go:

1. Hvað er klukkan?
17:26

2. Hvað er fullt nafn þitt?
Lilja Níelsdóttir

3. Hvað ertu hræddastur/hræddust við?
Að brjóta eina af mínum dýrmætu og handgerðu vax-tönnum sem ég er búin að vera vinna í allan vetur.

4. Fæðingarstaður?
Akureyri

5. Uppáhaldsmatur?
Án efa nautagúllas með heima-tilbúinni kartöflumús og hrísgrjónum... humm... ég fæ bara vatn í munninn.

6. Hvernig er hárið á þér á litinn núna?
Dökkbrúnt, natural baby.

7. Hefurðu ferðast?
Já, frekar mikið á síðasta ári. Ég fór til Englands fyrst þegar ég var ca. 7 ára og svo aftur í vor. Hef líka farið 4sinnum til Danmerkur, Kaupmannahöfn, og 4 til Svíþjóðar (Malmö, Lund, Falköping, Jönköping, Skara, Gautaborg og svo einhverja fleirri smábæja). Maður hefur svo náttúrulega líka komið til Þýskalands, Berlín. Síðan skellti ég mér til Ítalíu með skólanum í vor, ekkert smá gaman. En þá fórum við til Róm, Napólí og Popei.
Ég vona bara að mér hafi tekist að skrifa öll þessi heiti rétt ;D

8. Krumparðu eða brýturðu klósettpappírinn saman?
Hef bara aldrei pælt í því.

9. Hefurðu elskað einhvern svo mikið að þú hefur grátið?
...hummm....hugx, hugx.... ég held bara ekki.

10. Hefurðu lent í bílsslysi?
Neibb! Aldrei... 7913 (bankaði í eldhúsborðið)

11. BMW eða Mercedes Benz?
Erfitt val. En sigurvegarinn er BENZ-inn.

12. Uppáhaldsdagur vikunnar?
Miðvikudagur. Því þá er enginn skóli og ég fæ að sofa framm eftir á meðan allir fara í skólan eða vinnuna. Það er svo notarleg tilfinning að vita af öllum/flestum í skóla eða vinnu á meðan ég kúri bara undir heitu sænginni minn. Oh! það er svo notarlegt ,D

13. Uppáhaldsveitingastaðurinn?
Veitingarstaðurinn á Hótel Holti. Ekkert smá góðir kokkar þar og maturinn er æði!

14. Uppáhaldsblóm?
Liljur og rósir. En í raun er ekkert eitthvað eitt blóm flottara en hitt. Mér finnst alltaf blómvendirnir sem ég fæ t.d. frá Snævari ekkert smá flottir og vel úthugsagðir.

15. Uppáhaldsíþrótt að horfa á?
Handbolti, badminton, tennis, hlaup og sund.

16. Uppáhaldsdrykkur?
Ég veit að ég ætti ekki að segja það en það er Pepsi. Svo kemur vatn og appelsínusafi.

17. Uppáhaldsís?
Ísblóm. Þau eru svo góð, vanilluís með jarðaberjasósu og súkkulaði. Yndislegt.

18. Disney eða Warner Brothers?
Ég get ekki valið á milli. Bara bæði.

19. Uppáhaldsskyndibitastaður?
Subway og svo líka KFC. Þeir eru alveg hnífjafnir.

20. Hvaða litur er á gólfteppinu í svefnherberginu þínu?
Við erum bara með parket á allri íbúðinni... svo það er viðarlitað.

21. Hversu oft féllstu í bílprófinu?
Never ever. Náði í fyrsta skiptið, var bara með eina villu í skriflega hlutanum. Ég flaug í geng á bílprófinu. Það er svo dýrt að taka þetta próf. Ég týmdi bara ekki að falla.

22. Frá hverjum fékkstu seinast e-mail?
Frá Kaupþingi... man ekki alveg hvað þeir voru að senda, en það skiptir líka engu máli í þessu samhengi.

23. Hvað gerirðu oftast þegar þér leiðist?
Læri bara aðeins meira og svo aðeins meira. Ég hef bara engan tíma aflögu í að gera eitthvað jafn leiðinlegt og leiðast.

24. Háttatími?
"hóst, hóst"... svona upp úr miðnætti.

25. Hvað skiptir þig mestu máli?
Fjölskylda, vinir, heilsan og svo skólinn.

26. Uppáhaldssjónvarpsþáttur?
Herous, ER, Dr. House, Gilmore Girls, Charmed, Spaugstofan.

27. Fara á stefnumót með karlmanni eða konu?
Auðvitað karlmanni, er ekki fyrir konur. Miklu meira fyrir Snævar ;D

28. Hávaxin/n eða lágvaxin/n?
Ég hef bara orðið hrifinn af mönnum sem eru hærri en ég, jafnvel þó að ég sé á hælum. Sem er enginn smá stór kostur ,D

29. Uppáhaldslitur?
Ætli það sé ekki blár, grár, grænn og brúnn... og svo svona léttir og lífsglaðir litir.

30. Hvað áttu mörg gæludýr?
0, núll, zero...

31. Aldur: Ertu eldri eða yngri en 29 ára?
Yngri... hverskonar spurning er þetta. Maður er rétt búin að ná tvítugs aldrinum.

32. Hvað ætlarðu að gera áður en þú deyrð?
Lifa lífinu og ekki hugsa um dauðan eins og hann sé á næsta götuhorni tilbúinn að bregða þér... bú!

33. Hvert er stjörnumerkið þitt?
Það mun vera ljónið.


úff... þetta tók meira en hálftíma. Bjóst aldrei við því... úff, púst. Námið er víst farið aftur að æpa á mig. Maður verður víst að halda áfram, áfram og svo pínu lítið lengra.
See ya ;D

Wednesday, November 7, 2007

Breytingar

Ég er búin að vera frekar dugleg í dag að breyta blogginu mínu. Mér fannst það vanta eitthvað svona pínu extra caristma. Það er búið að sjá fyrir því breytingarnar hafa átt sér stað í rúmlega 2 tíma. Svona ekkert voða drastískt en þó eitthvað. Þetta tekur samt engan smá tíma. Sérstaklega þegar maður er að gera þetta í fyrsta skipti eins og ég. Blogspot er samt frekar einfalt. Ég skil bara ekki málið hvað þetta tekur langan tíma. En hvað með það, ég kann þetta allaveganna núna ;D

Eins og þeir sem þekkja mig vita, er ég frekar forvitin einstaklingur. Þess vegna ákvað ég að setja inn smá könnun á síðuna: Hver er besti gosdrykkurinn? Coca Cola eða Pespi? Ég hef oft lent í rökræðum þar sem þetta "alvarlega" mál er rætt, af fullri alvöru. Kannski þið gætuð sagt ykkar sköðun á því og tekið þátt í könnunni (má líka alveg skirfa comment).

Jæja, þá er víst best að snúa sér að bókastaflanum aftur.
Adios ;D

Sunday, November 4, 2007

Fréttablaðið í dag

Mér brá heldur betur í brún þegar ég sá forsíðu Fréttablaðsins í dag. Fyrirsögnin var svona: Offita aldraðra áhyggjuefni (sjá grein að neðan). Er bara öll íslenska þjóðin að fitna?

Pælum smá í þessu. Við skattgreiðendur borgum ríkinu skatt sem fer meðal annars í heilbrygðiskerfið. Ef að þetta verður að veruleika að mest megnis af íslensku þjóðinni fari að þjást af offitu verðum við að borga meira í skatt. Og það vill enginn. Vegna þess að hluti heilbrigðiskerfisins eykst til muna. Ætti ríkið ekki núna að setja af stað þjóðarátak gegn offitu. T.d. með því að greiða niður verðið í líkamsræktarstöðvar og sund, svo að þjóðin munu verða betur líkamlega á sig komin á komandi árum. Svo að þeir þurfa í framtíðinni ekki að greiða niður eins mikið af lækniskostnaði, lyfjum og svo ekki sé minnst á innlögn inn á sjúkrahús. Úfff! Þetta er nú ekkert smá peningar. Væri þetta ekki bara sniðugasta lausnin að setja af stað heilsuátak íslensku þjóðarinnar?


Offita aldraðra áhyggjuefni
Öldrunarlæknir segir vaxandi offitu og hreyfingarleysi munu hrjá eldri borgara í auknum mæli og afleiðingar þess verða heilbrigðistkerfinu þungur baggi. Fólk verði að huga vel að eigin heilsu á efri árum.

HEILBRIGÐISMÁL "Lífaldur hækkar og öldruðum fjölgar hlutfallslega. Það er ljóst að mörg ný vandamál munu steðja að heilbrigðiskerfi okkar vegna þessa," segir Tryggvi Egilsson, öldrunarlæknir á Landspítalanum og Hrafnistu.

Tryggvi hefur gert athuganir á þeim heilsufarsvandamálum sem líklegt er að hrjái eldri borgara í framtíðinni. Hann telur kvíðvænlega tíma fram undan. "Vaxandi offita, hreyfingarleysi og afleiðingar þess munu reynast heilbrigðiskerfinu þungur baggi í framtíðinni auk þess sem búast má við fleiri tilfellum áunninnar sykursýki," segir Tryggvi. Þá telur hann að berklatilfellum gæti fjölgað verulega, sem og sýkingum vegna ónæmra baktería. Hann bendir á að litlar framfarir hafi orðið í berklameðferð undanfarið og þróun sýklalyfja hafi ekki haldið í við þróun baktería.

Þó að komandi vandamál heilbrigðiskerfisins séu mikil tekur Tryggvi fram að ekki blasi við algert svartnætti. Miklar framfarir hafi orðið á meðferð ýmissa sjúkdóma, ljóst sé að margir aldraðir séu að verða meira sjálfbjarga með fjölgun gerviliðaaðgerða og augnaðgerða auk annarra úrræða svo sem gönguhjálpartækja. Þá hafi dregið úr reykingum og það muni lækka tíðni erfiðra sjúkdóma.

Nýlega var haldin ráðstefna í tilefni afmælis tveggja hjúkrunarheimila Hrafnistu. Var þar litið til framtíðar í tengslum við öldrunarmál og segir Sveinn H. Skúlason, forstjóri Hrafnistu, að í framtíðinni verði lögð áhersla á að aldraðir geti búið sem lengst á heimili sínu. Hann segir langa biðlista eftir hjúkrunarheimilum skýrast að hluta af því að fólk sé hrætt við að vera eitt, en með auknum stuðningi og heimaþjónustu verði hægt að draga úr biðlistum og auka þjónustu hjúkrunarheimila.

"Fólk verður samt að reyna að haga lífi sínu þannig að það geti verið sjálfbjarga þegar það verður eldra," segir Tryggvi. Hann bendir á að líkur séu að fjöldi aldraðra muni tvöfaldast á næstu þremur til fjórum áratugum þótt Íslendingum í heild muni aðeins fjölga um fimmtung. Fólk verði því að taka ábyrgð á sjálfu sér og reyna að tryggja velferð sína á efri árum. Það geri það best með því huga vel að eigin heilsu.- kdk

Tekið af heimasíðu Fréttablaðsins
(
http://vefblod.visir.is/index.php?netpaper=482)

Wednesday, October 31, 2007

Kaupmannahöfn - myndafærsla

hihi... ég var víst búin að lofa Önnu að setja inn nokkrar myndir frá því að ég kom til Danmerkur í sumar. Ég veit að það er mjög langt síðan það var eða í lok ágúst. En eins og máltækið segir: "Betra seint en aldrei". Ekki satt?
Við Snævar komum til Danmerkur í lok ágúst og vorum þar í viku til að slappa af eftir annríki sumarsins. Þetta var æðislega skemmtileg ferð. Við fengum bara ágæt veður, smá rigningu en það getur ekki skaðað neinn. Við fórum alveg nokkrum sinnum í Kristjaníu og þar fundum við heimsins besta hamborga. Hann var geðveikur og kostaði nánast ekki neitt. Algjör snild! Við fórum líka í tívólíið með Önnu. Við Anna gátum dregið Snævar í felst tækin. Æji... þetta var æðislega skemmtilegur dagur. Án efa besti dagur ferðarinnar.

Ég og Anna á Strikinu.

Klara (systir Snævars) og Snævar á gangi í Köben.

Stóru útitónleikarnir í Malmö.

Ég og Snævar á brautarstöðinni hjá Feelds.

Dabbi og Hilmar í góðu fyrirlæti (heima hjá Klöru).

Klara tilbúin á djammið.

Hin ógurlegi Nautilus... hjálp!

Ég og Anna í tívolíinu í Köben.

Snævar og ég í góðum gír í tívólinu.

Þetta eru svona helstu myndirnar úr ferðinni. En skemmtilegt er að segja frá því að þetta er fysta ferð okkar Snvæars til útlanda. Ekki amalegt að skella sér þá bara til Kaupmannahafnar. Jæja, best að halda áfram að læra.

Góða nótt

p.s. fleiri myndir eru að finna inn á Facebook.

Wednesday, October 24, 2007

Búið að laga

Ég er loksins búin að laga commentin, svo allir ættu að geta commentað á síðuna núna. Vona að þetta hafi gengið upp, en ég var víst pínu lengi að finna út hvernig þetta forrit virkar. Enda var ég búin að gleyma nánast öllu hvernig það virkar.

Ef það eru einhver vandamál með commentin endilega látið mig vita á e-mailinu: lin2@hi.is. Ég skal þá tékka á því.

Góða nótt elskurnar mínar ;D

Thursday, October 18, 2007

Your face in a book

Hjálp!!

Ég var að skrá mig í Facebook-safnið, enda komin tími til að maður geri eitthvað sniðugt. Ég held að ég sé búin að lofa nokkuð oft að fá mér svona myndasíðu, en nú loksins þegar ég er komin með hana kann ég bara ekkert á þessa síðu. Ég sem hélt að þetta væri bara pease of cake, en þetta er erfiðara. Eða ég bara að verða meiri ljóska?

Getur einhver gefið mér nokkuð tips um facebook?

Tuesday, October 9, 2007

Sko, hvað er að gangi!!

Tilkynning, Tilkynning

Ég er komin yfir til Sko og er símanúmerið mitt 615-0337. Ef það eru einhverjar/-ir fleiri með síman sinn hjá Sko má endilega hafa skrifa comment og ég set kannski viðkomandi inn sem vin hjá Sko. Þá hringjum við frítt hvort í annað.

En svona smá spurning. Ertu ánægður með símafyrirtækið þitt??

Saturday, October 6, 2007

Nýtt blogg að fæðast

Sælt verið fólkið

Það er sönn ánægja að vera byrjuð að blogga á nýjan leik. Margt hefur breyst frá síðasta bloggi enda ekki annað skrítið, þar sem liðið hefur rúmlega hálft ár síðan ég bloggaði síðast. Frekar langur tími ef ég segji sjálf frá.

Á þessum langa tíma hef ég útskrifast úr Fjölbrautarkólanum í Garðabæ (betur þekktur sem FG) af náttúrufræðibraut. Unnið hjá banka, byrjað að búa, farið til 3 landa og læra að meta frí tíma betur en ég hef áður gert. Það er bara yndislegt að hafa tíman til að taka langar sturtur og horft á uppáhaldsþáttinn þinn í sjónvarpinu. En stefnan í haust var sett á tannlæknadeild Háskóla Íslands. Þar sem ég neyðist víst til að keppa við 30 manns um 6-8 sæti í tannlæknadeild. Wish me good luck!

Úff!! þetta verður mikið puð í ár, en ég skal reyna eftir bestu getu að blogga reglulega ;D
kv. Lilja