Wednesday, October 31, 2007

Kaupmannahöfn - myndafærsla

hihi... ég var víst búin að lofa Önnu að setja inn nokkrar myndir frá því að ég kom til Danmerkur í sumar. Ég veit að það er mjög langt síðan það var eða í lok ágúst. En eins og máltækið segir: "Betra seint en aldrei". Ekki satt?
Við Snævar komum til Danmerkur í lok ágúst og vorum þar í viku til að slappa af eftir annríki sumarsins. Þetta var æðislega skemmtileg ferð. Við fengum bara ágæt veður, smá rigningu en það getur ekki skaðað neinn. Við fórum alveg nokkrum sinnum í Kristjaníu og þar fundum við heimsins besta hamborga. Hann var geðveikur og kostaði nánast ekki neitt. Algjör snild! Við fórum líka í tívólíið með Önnu. Við Anna gátum dregið Snævar í felst tækin. Æji... þetta var æðislega skemmtilegur dagur. Án efa besti dagur ferðarinnar.

Ég og Anna á Strikinu.

Klara (systir Snævars) og Snævar á gangi í Köben.

Stóru útitónleikarnir í Malmö.

Ég og Snævar á brautarstöðinni hjá Feelds.

Dabbi og Hilmar í góðu fyrirlæti (heima hjá Klöru).

Klara tilbúin á djammið.

Hin ógurlegi Nautilus... hjálp!

Ég og Anna í tívolíinu í Köben.

Snævar og ég í góðum gír í tívólinu.

Þetta eru svona helstu myndirnar úr ferðinni. En skemmtilegt er að segja frá því að þetta er fysta ferð okkar Snvæars til útlanda. Ekki amalegt að skella sér þá bara til Kaupmannahafnar. Jæja, best að halda áfram að læra.

Góða nótt

p.s. fleiri myndir eru að finna inn á Facebook.

Wednesday, October 24, 2007

Búið að laga

Ég er loksins búin að laga commentin, svo allir ættu að geta commentað á síðuna núna. Vona að þetta hafi gengið upp, en ég var víst pínu lengi að finna út hvernig þetta forrit virkar. Enda var ég búin að gleyma nánast öllu hvernig það virkar.

Ef það eru einhver vandamál með commentin endilega látið mig vita á e-mailinu: lin2@hi.is. Ég skal þá tékka á því.

Góða nótt elskurnar mínar ;D

Thursday, October 18, 2007

Your face in a book

Hjálp!!

Ég var að skrá mig í Facebook-safnið, enda komin tími til að maður geri eitthvað sniðugt. Ég held að ég sé búin að lofa nokkuð oft að fá mér svona myndasíðu, en nú loksins þegar ég er komin með hana kann ég bara ekkert á þessa síðu. Ég sem hélt að þetta væri bara pease of cake, en þetta er erfiðara. Eða ég bara að verða meiri ljóska?

Getur einhver gefið mér nokkuð tips um facebook?

Tuesday, October 9, 2007

Sko, hvað er að gangi!!

Tilkynning, Tilkynning

Ég er komin yfir til Sko og er símanúmerið mitt 615-0337. Ef það eru einhverjar/-ir fleiri með síman sinn hjá Sko má endilega hafa skrifa comment og ég set kannski viðkomandi inn sem vin hjá Sko. Þá hringjum við frítt hvort í annað.

En svona smá spurning. Ertu ánægður með símafyrirtækið þitt??

Saturday, October 6, 2007

Nýtt blogg að fæðast

Sælt verið fólkið

Það er sönn ánægja að vera byrjuð að blogga á nýjan leik. Margt hefur breyst frá síðasta bloggi enda ekki annað skrítið, þar sem liðið hefur rúmlega hálft ár síðan ég bloggaði síðast. Frekar langur tími ef ég segji sjálf frá.

Á þessum langa tíma hef ég útskrifast úr Fjölbrautarkólanum í Garðabæ (betur þekktur sem FG) af náttúrufræðibraut. Unnið hjá banka, byrjað að búa, farið til 3 landa og læra að meta frí tíma betur en ég hef áður gert. Það er bara yndislegt að hafa tíman til að taka langar sturtur og horft á uppáhaldsþáttinn þinn í sjónvarpinu. En stefnan í haust var sett á tannlæknadeild Háskóla Íslands. Þar sem ég neyðist víst til að keppa við 30 manns um 6-8 sæti í tannlæknadeild. Wish me good luck!

Úff!! þetta verður mikið puð í ár, en ég skal reyna eftir bestu getu að blogga reglulega ;D
kv. Lilja