Saturday, October 6, 2007

Nýtt blogg að fæðast

Sælt verið fólkið

Það er sönn ánægja að vera byrjuð að blogga á nýjan leik. Margt hefur breyst frá síðasta bloggi enda ekki annað skrítið, þar sem liðið hefur rúmlega hálft ár síðan ég bloggaði síðast. Frekar langur tími ef ég segji sjálf frá.

Á þessum langa tíma hef ég útskrifast úr Fjölbrautarkólanum í Garðabæ (betur þekktur sem FG) af náttúrufræðibraut. Unnið hjá banka, byrjað að búa, farið til 3 landa og læra að meta frí tíma betur en ég hef áður gert. Það er bara yndislegt að hafa tíman til að taka langar sturtur og horft á uppáhaldsþáttinn þinn í sjónvarpinu. En stefnan í haust var sett á tannlæknadeild Háskóla Íslands. Þar sem ég neyðist víst til að keppa við 30 manns um 6-8 sæti í tannlæknadeild. Wish me good luck!

Úff!! þetta verður mikið puð í ár, en ég skal reyna eftir bestu getu að blogga reglulega ;D
kv. Lilja

2 comments:

Inga said...

Velkomin aftur til bloggheima ;op
Hlakka til að heyra meira frá þér.

Lilja Níelsdóttir said...

Takk, takk. Ég ætla að gera heiðarlega tilraun til að blogga oftar. Við sjáum hvernig það gengur ;D