Ég sá þennan lista á blogginu hjá Elínu og Önnu. Þannig að ég ákvað að fá að ræna honum... no hard feelings ,D Það var svo gaman að lesa hann hjá þeim þannig að ég ákvað að fylla hann út hérna á blogginu mínu. Here I go:
1. Hvað er klukkan?
17:26
2. Hvað er fullt nafn þitt?
Lilja Níelsdóttir
3. Hvað ertu hræddastur/hræddust við?
Að brjóta eina af mínum dýrmætu og handgerðu vax-tönnum sem ég er búin að vera vinna í allan vetur.
4. Fæðingarstaður?
Akureyri
5. Uppáhaldsmatur?
Án efa nautagúllas með heima-tilbúinni kartöflumús og hrísgrjónum... humm... ég fæ bara vatn í munninn.
6. Hvernig er hárið á þér á litinn núna?
Dökkbrúnt, natural baby.
7. Hefurðu ferðast?
Já, frekar mikið á síðasta ári. Ég fór til Englands fyrst þegar ég var ca. 7 ára og svo aftur í vor. Hef líka farið 4sinnum til Danmerkur, Kaupmannahöfn, og 4 til Svíþjóðar (Malmö, Lund, Falköping, Jönköping, Skara, Gautaborg og svo einhverja fleirri smábæja). Maður hefur svo náttúrulega líka komið til Þýskalands, Berlín. Síðan skellti ég mér til Ítalíu með skólanum í vor, ekkert smá gaman. En þá fórum við til Róm, Napólí og Popei.
Ég vona bara að mér hafi tekist að skrifa öll þessi heiti rétt ;D8. Krumparðu eða brýturðu klósettpappírinn saman?
Hef bara aldrei pælt í því.
9. Hefurðu elskað einhvern svo mikið að þú hefur grátið?
...hummm....hugx, hugx.... ég held bara ekki.
10. Hefurðu lent í bílsslysi?
Neibb! Aldrei... 7913 (bankaði í eldhúsborðið)
11. BMW eða Mercedes Benz?
Erfitt val. En sigurvegarinn er BENZ-inn.
12. Uppáhaldsdagur vikunnar?
Miðvikudagur. Því þá er enginn skóli og ég fæ að sofa framm eftir á meðan allir fara í skólan eða vinnuna. Það er svo notarleg tilfinning að vita af öllum/flestum í skóla eða vinnu á meðan ég kúri bara undir heitu sænginni minn. Oh! það er svo notarlegt ,D
13. Uppáhaldsveitingastaðurinn?
Veitingarstaðurinn á Hótel Holti. Ekkert smá góðir kokkar þar og maturinn er æði!
14. Uppáhaldsblóm?
Liljur og rósir. En í raun er ekkert eitthvað eitt blóm flottara en hitt. Mér finnst alltaf blómvendirnir sem ég fæ t.d. frá Snævari ekkert smá flottir og vel úthugsagðir.
15. Uppáhaldsíþrótt að horfa á?
Handbolti, badminton, tennis, hlaup og sund.
16. Uppáhaldsdrykkur?
Ég veit að ég ætti ekki að segja það en það er Pepsi. Svo kemur vatn og appelsínusafi.
17. Uppáhaldsís?
Ísblóm. Þau eru svo góð, vanilluís með jarðaberjasósu og súkkulaði. Yndislegt.
18. Disney eða Warner Brothers?
Ég get ekki valið á milli. Bara bæði.
19. Uppáhaldsskyndibitastaður?
Subway og svo líka KFC. Þeir eru alveg hnífjafnir.
20. Hvaða litur er á gólfteppinu í svefnherberginu þínu?
Við erum bara með parket á allri íbúðinni... svo það er viðarlitað.
21. Hversu oft féllstu í bílprófinu?
Never ever. Náði í fyrsta skiptið, var bara með eina villu í skriflega hlutanum. Ég flaug í geng á bílprófinu. Það er svo dýrt að taka þetta próf. Ég týmdi bara ekki að falla.
22. Frá hverjum fékkstu seinast e-mail?
Frá Kaupþingi... man ekki alveg hvað þeir voru að senda, en það skiptir líka engu máli í þessu samhengi.
23. Hvað gerirðu oftast þegar þér leiðist?
Læri bara aðeins meira og svo aðeins meira. Ég hef bara engan tíma aflögu í að gera eitthvað jafn leiðinlegt og leiðast.
24. Háttatími?
"hóst, hóst"... svona upp úr miðnætti.
25. Hvað skiptir þig mestu máli?
Fjölskylda, vinir, heilsan og svo skólinn.
26. Uppáhaldssjónvarpsþáttur?
Herous, ER, Dr. House, Gilmore Girls, Charmed, Spaugstofan.
27. Fara á stefnumót með karlmanni eða konu?
Auðvitað karlmanni, er ekki fyrir konur. Miklu meira fyrir Snævar ;D
28. Hávaxin/n eða lágvaxin/n?
Ég hef bara orðið hrifinn af mönnum sem eru hærri en ég, jafnvel þó að ég sé á hælum. Sem er enginn smá stór kostur ,D
29. Uppáhaldslitur?
Ætli það sé ekki blár, grár, grænn og brúnn... og svo svona léttir og lífsglaðir litir.
30. Hvað áttu mörg gæludýr?
0, núll, zero...
31. Aldur: Ertu eldri eða yngri en 29 ára?
Yngri... hverskonar spurning er þetta. Maður er rétt búin að ná tvítugs aldrinum.
32. Hvað ætlarðu að gera áður en þú deyrð?
Lifa lífinu og ekki hugsa um dauðan eins og hann sé á næsta götuhorni tilbúinn að bregða þér... bú!
33. Hvert er stjörnumerkið þitt?
Það mun vera ljónið.
úff... þetta tók meira en hálftíma. Bjóst aldrei við því... úff, púst. Námið er víst farið aftur að æpa á mig. Maður verður víst að halda áfram, áfram og svo pínu lítið lengra.
See ya ;D