Wednesday, November 7, 2007

Breytingar

Ég er búin að vera frekar dugleg í dag að breyta blogginu mínu. Mér fannst það vanta eitthvað svona pínu extra caristma. Það er búið að sjá fyrir því breytingarnar hafa átt sér stað í rúmlega 2 tíma. Svona ekkert voða drastískt en þó eitthvað. Þetta tekur samt engan smá tíma. Sérstaklega þegar maður er að gera þetta í fyrsta skipti eins og ég. Blogspot er samt frekar einfalt. Ég skil bara ekki málið hvað þetta tekur langan tíma. En hvað með það, ég kann þetta allaveganna núna ;D

Eins og þeir sem þekkja mig vita, er ég frekar forvitin einstaklingur. Þess vegna ákvað ég að setja inn smá könnun á síðuna: Hver er besti gosdrykkurinn? Coca Cola eða Pespi? Ég hef oft lent í rökræðum þar sem þetta "alvarlega" mál er rætt, af fullri alvöru. Kannski þið gætuð sagt ykkar sköðun á því og tekið þátt í könnunni (má líka alveg skirfa comment).

Jæja, þá er víst best að snúa sér að bókastaflanum aftur.
Adios ;D

5 comments:

Inga said...

Má ég kjósa 'none of the above'?
Hvað ef maður vill hvorugt?

Lilja Níelsdóttir said...

ó... ég steingleymdi þeim valmöguleika. Ég skal bæta honum inn í snatri ;D

Anonymous said...

Hvers konar spurning er þetta!?!?!?! auðvitað kóka kóla og ekkert annað kemur til greina!!! Og það verður að vera íslenskt...ekki e-ð norskt rusl! ojj bara.
Eini kosturinn við norska kókið er að það er svo vont að ég er bara eiginlega hætt að fá kókþörf :P Flábætt :P

Anonymous said...

Hvorugt! Drekk ekki gos... En fæ þó stundum smá coca-cola ef einhver blandar drykkinn minn þannig... jakk.

Lilja Níelsdóttir said...

Ég er samt alveg sammála Elínu. Gosdyrkkir yfirhöfuð eru bara betri á Íslandi. Það er kannski vegna þess að vatnið er svo gott ;D