Saturday, December 1, 2007

dúmm, dúmm, dúmm... trogdor!

úff... þá er maður búin að uppfæra bloggið aðeins. Ég verð að viðurkenna það hér og nú að ég stal hugmyndinni hennar Önnu, "Á döfinni". Enda er það snildar hugmynd sem hver og einn ætti að hafa upp á blogginu sínu. Ég skírði mitt þó að eins örðu vísi og um kalla það "Atburði"... ekki mjög frumlegt ég veit, en það virkar.

Þeir sem langar að sjá eitthvað mjög fyndið á youtube ættu að slá inn leitar orðið TROGDOR eða STRONG BAD. Þá finni þið mjög svo húmor miklar teiknimynda stuttmyndir. haha.... dúmm, dúmm, dúmm tragdor! Þið getið líka skrollað niður síðuna mína og sé link á stuttmyndar frá youtube.

Annars er ekkert rosalega mikið að frétta af mér. Í dag skrifaði ég þó undir samninginn hjá Kaupþingi. Þannig að ég er aftur orðin starfsmaður hjá því ágæta fyrirtæki ;D Nenni bara ekki að blogga meira að sinni. Ég dæli inn fréttum um leið og þær berast.... see ya.

5 comments:

Anonymous said...

vá til hamingju með nýja starfið :):)
Hey ég er samt eiginlega á vitlausum stað í tenglunum...ég er í útlöndum. En það tekur því kannski ekki að færa mig þar sem ég kem heim eftir 2 vikur ;) En ég fer aftur út einhverntíman ;) hehe

Lilja Níelsdóttir said...

Heyrðu ég breytti þér í snatri. Færði þig yfir í "Fólk í útlöndum". Ég greinilega vill bara hafa þig heima á klakanum ;D

Anonymous said...

Oh Lilja mín, ég er að reyna að ná í þig ;) En það er slökkt á farsímanum þínum svo ég reyni bara að hringja seinna :)

Allavega, fékkstu smsið frá mér sem ég sendi þér á held ég sunnudaginn með að ég kæmist því miður ekki í heimsókn á mánudaginn? Því að ég brunaði beint norður með frænda vinkonu minnar og gat því ekkert stoppað í borginni :( Efast líka um að ég geti eitthvað stoppað þegar ég fer suður aftur, en við sjáum bara til :)

En sem sagt, jólapakkinn þinn fer í póst á morgun, vona að hann verði kominn fyrir jól þótt það verði eflaust ansi tæpt...

Ég reyni bara að hringja aftur í þig seinna :)

Anonymous said...

Þetta var sem sagt ég, Anna Björk, hér fyrir ofan...

Lilja Níelsdóttir said...

oh... ég vona allaveganna að við getum hittst eitthvað áður en þú ferð aftur út. Við verðum bara í bandi.

p.s. takk kærlega fyrir jólagjöfina Anna ;D