Wednesday, November 26, 2008

Fannar Logi Jóhannessson

Ég fékk þennan póst fyrir svolitlu síðan. Mig langar eindregið til að biðja ykkur lesendur góðir um að lesa það sem hér stendur fyrir neðan.

Fannari kynnist ég fyrst í Kópavogsskóla í 7. bekk. Bekkirnir tveir N og S voru mjög samrýmdir enda mjög lítill árgangur. Fannar svolítill stríðispúki og hafði einstakt lag á að gera mann pirraðan, en í sömu andrá gat hann sagt eitthvað fyndið sem fékk mann til að hlægja. Ég get ekki sagt að ég hafi þekkt hann vel í skólanum en hann var hluti af hópnum, litla samfélagi N og S bekkjanna. Ég vissi ekki hvernig ég ætti að nálgast ykkur fyrrum bekkjarfélagar, en maður hefur víst misst sambandið í gengum árin. Ef þið lesið þetta blogg, mætti ég biðja ykkur um að benda hinum krökkunum á þessa færslu eða segja þeim frá sjóði Fannars.

Með fyrirfram þökk,
Lilja Níelsdóttir
Kópavogsskóli, Útskriftarárgangur '03

¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨

Kæru vinir og vandamenn

Til minningar um Fannar Loga okkar, stofnuðum við í sumar sem leið sjóð í hans nafni, hjá Styrktarfélgai krabbameinssjúkra barna. Safnaðist í hann um 300.000 kr. Erum við afar þakklát þeim stuðningi.

Við leitum til ykkar því okkar langar að fara af stað með söfnun tengda afmæli Fannars þann 25. nóvember. Ef þessi söfnun gengur vel, mun sjóðurinn verða í Krabbameinsfélgainu til frambúðar, er það okkar einlæg ósk að svo geti orðið.

Til þess að stuðla að því langar okkur að vera með árlega söfnun tegnda afmæli Fannars.

Seinna meir er jafnvel hugsandi að fara af stað með stærri söfnun, þá jafnvel í samvinnu við félagið sem við höfum átt mjög gott samstarf með.

Félagið sér alfarið um útdeilingu úr sjóðnum og erum við afar sátt við það fyrirkomulag.

Sjóðurinn er hugsaður til að hjálpa börnum sem eiga sér þann draum stærstan að komast á fóboltaleik erlendis. Mun hann koma til með að veita börnum þá einstöku ósk að fá að upplifa hetjurnar sínar spila fótbolta og upplifa það með berum augum. Fannar fékk tækifæri til að upplifa hetjurnar sínar á Old Trafford með berum augum og þannig rættist draumur hans frá barnæsku. Fyrir Fannar og nánustu fjölskyldu hans var þessi ferð algerlega ómetanleg og ógleymanleg því ómetanlegar minningar standa eftir.

Allur stuðningur við sjóðinn er gífurlega vel þeginn, stór og smár og þakklæti okkar sem standa á bakvið hann er ótakmarkað. Það er ekki einugis verið að gefa pening, það er svo miklu meira sem er verið að gefa. Það er verið að gefa fjölskyldum krabbameinssjúkra barna von og gleði. Hjálpaðu okkar að láta draum annarra barna rætast. Því okkar trú er sú að það sé í anda Fannars Loga.
Reikningur: 0301-26-545
Kennitala: 630591-1129
Tilvísunarnúmer: FLJ

Áríðandi er að tilvísunarnúmer Fannars komi fram svo öruggt sé að peningurinn fari í réttann sjóð!!

Vinsamlegast áframsendið þennan póst til allra þeirra sem tengdust Fannari fjölskyldu og vinaböndum.

Með fyrirfram þökk,
Fyrir hönd,
Aðstandenda og vina
Þórey

No comments: